Hneppt með pífu dömu
Prjónauppskrift eftir Margréti Lindu Gunnlaugsdóttur. Hönnuð fyrir Gústu alpakka garnið. Í stærðum S- 2XL.
Bolur er prjónaður neðan frá og upp. Ermar ofan frá og
niður. Bolur byrjar á faldi sem saumaður er niður á röngu.
Á neðanverðum bol er lykkjum fækkað um þriðjung.
Þá myndast pífa í stað stroffs. Ermar eru prjónaðar út frá
bol. Aukið er út efst á ermum. Þá verður til svipuð rykking
og á pífu neðst á bol. Hnappalistar og kragi eru prjónaðir
fram og til baka. Ermar í hring. Undirrituð mælir með því að prjóna hnappalista og
kraga strax eftir að boli lýkur. Einnig að gengið sé frá
lausum endum. Þá er komin mynd á flíkina og skemmtilegra
að hafa hana milli handa.